Erlent

Milljónir falskra á Facebook

Um 20 þúsund fölskum Facebook-notendum er eytt daglega, en það er aðeins dropi í hafið.
Um 20 þúsund fölskum Facebook-notendum er eytt daglega, en það er aðeins dropi í hafið. Fréttablaðið/ap
Á bilinu fimm til sex prósent af Facebook-síðum sem stofnaðar hafa verið eru falskar og ekki með raunverulegan notenda að baki sér. Það þýðir að 40 til 50 milljónir sigla undir fölsku flaggi á samskiptasíðunni.

Fram kemur í nýjasta eintaki Vírsins, fréttabréfi áhættuþjónustu Deloitte, að margar af þessum fölsku síðum séu notaðar til að smita aðra notendur af óværu, svindla út fjármuni og reyna að stela viðkvæmum persónuupplýsingum.

Notendur eru varaðir við því að samþykkja torkennilegar vinabeiðnir og smella á undarlega hlekki sem berast frá öðrum notendum. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×