Valdaránsstjórn hersins lofar lýðræði á ný 2. apríl 2012 07:30 Amadou Haya Sanogo, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Malí, gefur út yfirlýsingu sína. Á vinstri hlið hans stendur Djibril Bassole, utanríkisráðherra Búrkína Fasó. nordicphotos/AFP
Amadou Haya, leiðtogi valdaránsstjórnar hermanna í Malí, hét því í gær að endurreisa stjórnskipan landsins. Um svipað leyti bárust fréttir af því að uppreisnarsveitir túarega hefðu náð borginni Timbúktú á sitt vald. „Við lofum því hátíðlega að frá og með deginum í dag verður stjórnarskrá lýðveldisins Malí frá 25. febrúar 1992 endurreist, sem og stofnanir lýðveldisins,“ sagði Sanogo í yfirlýsingu sinni. Þetta er sama stjórnarskráin sem hermennirnir brutu gegn þegar þeir tóku völdin þann 21. mars. Ekki er ljóst hvaða þýðingu þessi yfirlýsing hefur nú strax, þar sem herinn er enn við völd. Ekki fylgdi yfirlýsingunni heldur nein tímaáætlun um kosningar eða aðra endurreisn stjórnskipunarinnar. Malí hafði verið lýðræðisríki í meira en tvo áratugi þegar hermenn í herstöðinni Kati gerðu uppreisn og réðust í beinu framhaldi inn í forsetahöllina og aðrar valdastofnanir, sem eru í næsta nágrenni herstöðvarinnar í höfuðborginni Bamako. Þegar hermennirnir réðust á forsetahöllina fór forsetinn, Amadou Toumani Touré, í felur. Aðeins rúmur mánuður var þá til kosninga, sem halda átti 29. apríl. Touré hefði þá verið búinn að gegna forsetaembættinu í tvö kjörtímabil og var því ekki í kjöri, þar sem forseti getur ekki setið lengur samkvæmt stjórnarskrá. Ástæða uppreisnarinnar var sögð vera sú, að stjórnvöld hefðu ekki séð til þess að herinn hefði nægilegan vopnastyrk til að ráða niðurlögum uppreisnar túarega. - gb
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira