Erlent

Mótmæli gegn NATO í Belgíu

Lögreglan stöðvaði mótmæli. nordicphotos/AFP
Lögreglan stöðvaði mótmæli. nordicphotos/AFP
Lögreglan í Belgíu handtók í gær um það bil 200 manns sem efndu til mótmæla við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Belgíu. Fólkið mætti á staðinn til að krefjast kjarnorkuafvopnunar og brotthvarfs herliðs allra aðildarríkja NATO frá Afganistan. Mótmælendurnir reyndu að komast inn fyrir girðinguna, sem er í kringum um höfuðstöðvarnar, en þeim tókst það ekki. Lögreglumenn þurftu að elta marga mótmælendurna góðan spöl áður en þeim tókst að handtaka þá. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×