300 þúsund leituðu hælis í ESB-ríkjum 26. mars 2012 01:00 Flestir leituðu hælis í Frakklandi á síðasta ári eða rúmlega 56 þúsund manns. Langflestum hælisleitendum er hafnað. nordicphotos/getty
Hælisleitendum fjölgaði í Evrópusambandsríkjum í fyrra miðað við árið áður. 301 þúsund manns leituðu hælis í fyrra en 259 þúsund árið 2010. Þetta kemur fram í tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Níu prósent hælisleitenda komu frá Afganistan, eða 28 þúsund manns. Þá komu átján þúsund frá Rússlandi, tæplega sextán þúsund frá Pakistan, rúmlega fimmtán prósent frá Írak og fjórtán þúsund frá Serbíu. Samkvæmt mati Eurostat voru níu af hverjum tíu hælisleitendum að sækja um hæli í fyrsta sinn en einn af hverjum tíu hafði sótt um áður. Í fyrra voru teknar ákvarðanir í málum 237.400 hælisleitenda en margir þeirra hælisleitenda höfðu sótt um hæli fyrr. Þremur af hverjum fjórum umsóknum var hafnað, eða 178 þúsund. 29 þúsund fengu stöðu sína sem flóttamanns staðfesta og 21.400 stöðu flóttamanns með þörf fyrir viðbótarvernd. Rúmlega níu þúsund manns fengu dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ríflega níutíu prósent allra hælisleitendanna komu til tíu ríkja innan ESB. Langflestir sóttu um hæli í Frakklandi og Þýskalandi, 56 og 53 þúsund manns. Þá sóttu 34 þúsund manns um hæli á Ítalíu og 32 þúsund í Belgíu. Hælisleitendur í Svíþjóð voru tæplega þrjátíu þúsund og 26 þúsund í Bretlandi. Ríflega fjórtán þúsund hælisleitendur komu til bæði Hollands og Austurríkis í fyrra á meðan níu þúsund sóttu um hæli í Grikklandi og sjö þúsund í Póllandi. Fæstir leituðu hælis í Eistlandi, eða 65 manns. Þá leituðu 275 til Portúgal, 340 til Lettlands, 360 til Slóveníu og 490 til Slóvakíu. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira