Erlent

Eins íbúa þorp selt á uppboði

Verslunareigandinn Don Sammons er farinn að hugsa sér til hreyfings og selur því þorpið Buford.
Verslunareigandinn Don Sammons er farinn að hugsa sér til hreyfings og selur því þorpið Buford. Fréttablaðið/AP
Fámennasta byggðarlag Bandaríkjanna, Buford í Wyoming-ríki, verður selt hæstbjóðanda í næsta mánuði. Eini íbúi Buford er Don Sammons, sem hefur rekið þar verslun í tuttugu ár.

Þorpið er þó ekki fullgilt sveitarfélag heldur er staða þess frekar hugsuð með skírskotun til sögunnar, en á sínum tíma bjuggu þar allt að 2.000 manns.

Með í væntanlegum kaupum fylgir bensínstöð, verslun, skólabygging, verkstæði, bjálkakofi og einbýlishús. Sammons vonast til þess að fá 100.000 dali hið minnsta fyrir Buford.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×