Erlent

Einn hermaður lést í árásinni

Minningarathöfn um hina látnu var haldin í gær.
Minningarathöfn um hina látnu var haldin í gær. nordicphotos/AFP
Uppreisnarmenn í Afganistan gerðu árás á háttsetta fulltrúa Afganistan-stjórnar í þorpinu Balandi, þar sem þeir tóku þátt í minningarathöfn um þorpsbúa sem bandarískur hermaður myrti um helgina.

Tveir bræður Hamids Karzai forseta voru meðal þeirra sem urðu fyrir árásinni, en sluppu án meiðsla. Þrýstingur hefur aukist á Bandaríkjamenn að hraða brotthvarfi hers síns frá Afganistan. Búist er við að þetta verði rætt í dag á fundi þeirra Baracks Obama Bandaríkjaforseta og Davids Camerons, forsætisráðherra Breta.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×