Erlent

10% vilja úr þjóðkirkjunni

Giftingahringar hringar brúðkaupshringar
Giftingahringar hringar brúðkaupshringar
Um tíundi hver meðlimur í dönsku þjóðkirkjunni hugsar sér að segja sig úr henni ef hjónavígslur samkynhneigðra verða lögleyfðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef danska ríkisútvarpsins sem vitnar í nýlega skoðanakönnun. Frumvarp þar að lútandi er nú fyrir þjóðþinginu og er búist við að það verði að lögum í sumar.

Þó hugmyndirnar hafi jafnan fengið jákvæð viðbrögð eru hins vegar tíu prósent reiðubúin til að yfirgefa kirkjuna ef til þessa kemur. Áttatíu prósent sögðu hins vegar í könnuninni að úrsögn hvarflaði ekki að þeim.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×