Erlent

Putin endurvekur verkamann ársins í Rússlandi

Valdimir Putin forseti Rússlands hefur ákveðið að endurvekja þann sið frá Sovétríkunum sálugu að heiðra bestu verkamann landsins með sérstökum verðlaunum.

Þetta tilkynnti Putin á ríkisstjórnarfundi í vikunni. Þar sagði Putin að héðan í frá yrði haldin samkeppni árlega um hver væri besti logsuðumaður landsins, besti múrarinn, rafvirkinn, námumaðurinn og vörubílstjórinn. Í boði verða peningaverðlaun og fær sigurvegarinn 300 þúsund rúblur eða um 1,3 milljónir króna í sinn hlut.

Í frétt um málið á BBC segir að heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti Rússlands sé þegar farið að velja verkamenn í héruðum landsins til að taka þátt í þessari samkeppni.

Þessi samkeppni minnir mjög á Sovétríkin sálugu en þar var algengt að velja verkamenn ársins á mörgum sviðum og útnefna þá hetjur Sovétríkjanna. Fengu þeir sérstaka bónusa og mikið lof í fjölmiðlum enda var þeim ætlað að hvetja aðra verkamenn til dáða og auka afköst þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×