Erlent

Franska lögreglan handtekur 20 islamista

Franska lögreglan hefur handtekið 20 íslamista í borginni Toulouse og nágrenni hennar.

Um er að ræða einstaklinga sem tilheyra jihad hópnum Forsane Alizza. Franska lögreglan segir að ekki séu bein tengsl á milli þessara aðgerða nú og fjöldamorðanna í borginni fyrir nokkru síðan en þá myrti Mohammed Merah sjö manns þar af þrjú börn áður en hann var sjálfur felldur í árás sérsveitar lögreglunnar eftir langt umsátur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×