Vopnabirgðir uppreisnarmanna þverra 11. ágúst 2012 02:00 Sýrlenskir hermenn taka sér stöðu gegn uppreisnarmönnum sem skortir vopn til að halda aftur af þungum árásum stjórnarhersins.nordicphotos/afp
Sýrlenskir uppreisnarmenn eiga við vanda að etja því skotfæri þeirra eru nú af skornum skammti. Stjórnarher Bashars al-Assad gerir enn þungar árásir á virkisborgina Aleppo í norðurhluta landsins. „Við berjumst með AK-47 hríðskotarifflum gegn orrustuþotum,“ sagði Mohammad al-Hassan, uppreisnarmaður í helsta virki uppreisnarmanna í Aleppo, þegar hann lýsti bardögum síðustu daga. „Ég veit ekki hversu lengi við höldum þetta út.“ Annar uppreisnarmaður í Aleppo sagði sýrlenska herinn láta sprengjum rigna yfir hverfi á valdi uppreisnarmanna. Bráðlega væri ekkert eftir til að rústa í borginni eftir tveggja vikna bardaga þar. Íranar kölluðu saman þrjátíu fulltrúa jafnmargra þjóðríkja í gær. Fundurinn var meðal annars sóttur af fulltrúum Rússlands og Kína en ólíklegt er talið að hann hafi mikið vægi á alþjóðavísu. Fundurinn er einnig talinn merki um staðfastan stuðning Írans við stjórnvöld í Sýrlandi. Íranar segja markmiðið hafa verið að skerpa umræðuna í alþjóðasamfélaginu um ástandið í Sýrlandi. Bandaríkin sniðgengu fundinn og sögðu hegðan Írana hafa vond áhrif á ástandið í Sýrlandi. Þá sendu Bretar uppreisnarmönnum fimm milljón punda hjálparaðstoð til viðbótar við það sem þeir höfðu áður sent. Styrkurinn er að andvirði tæplega eins milljarðs íslenskra króna.- bþh
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira