Erlent

Obama vill verulega fækkun kjarnorkuvopna í Bandaríkjunum

Barack Obama Bandaríkjaforseti vill draga verulega úr fjölda kjarnorkuvopna í Bandaríkjunum. Hann þarf þó að sannfæra Rússa um að gera slíkt einnig.

Þetta kom fram í ræðu sem Obama hélt í Hankuk háskólanum í Seul höfuðborg Suður-Kóreu í gærkvöldi.

Obama er í opinberri heimsókn í Suður Kóreu en þar tekur hann þátt í fjölþjóðlegri ráðstefnu um kjarnorkuöryggi sem hefst í dag.

Erlendir fjölmiðlar segja frá því að Obama ætli að ræða fækkun kjarnorkuvopna við Valdimir Putin forseta Rússlands þegar þeir hittast í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×