Erlent

Svisslendingar vilja ekki lengra sumarfrí

Svisslendingar höfnuðu því að lengja sumarfrí sitt úr fjórum vikum í sex í þjóðaratkvæðagreiðslu um málið í gærdag.

Alls voru 67% Svisslendinga andvígir því að lengja sumarfrí sitt. Í frétt um málið í blaðinu Le Matin segir að meiri áhugi hafi verið fyrir lengingu á fríinu í þeim héruðum landsins þar sem frönsku- og ítölskumælandi fólk býr en í þeim héruðum þar sem þýskumælandi fólk býr.

Þjóðaratkvæðagreiðslan var haldin að frumkvæði Travail Suisse sem eru stærstu verkalýðssamtök landsins. Samtök atvinnurekenda í Sviss eru mjög ánægð með niðurstöðuna en þau höfðu áður sagt að lenging á fríinu hefði kostað meira atvinnuleysi í landinu. Atvinnuleysi í Sviss er með því minnsta innan OECD landanna.

Það var kosið um fleira en frí í Sviss. Þannig samþykktu borgarbúar í Zürich með 53% atkvæða að settir yrðu upp sérstakir bílskúrar í borginni þar sem vændiskonur geta hitt þá viðskiptavini sína sem eru akandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×