Erlent

Mikið mannfall í Homs í dag

Sýrlensk yfirvöld viðurkenna að fólkið hafi farist, en kenna hryðjuverkamönnum um morðin.
Sýrlensk yfirvöld viðurkenna að fólkið hafi farist, en kenna hryðjuverkamönnum um morðin. mynd/AP
Að minnsta kosti 47 almennir borgarar eru sagðir hafa látið lífið í sýrlensku borginni Homs eftir að hersveitir hliðhollar stjórnvöldum gerðu árás á borgina.

Konur og börn eru á meðal fórnarlamba að því er mótmælendur segja en árásin var gerð í nótt. Þá er fullyrt að sumir hinna látnu hafi verið pyntaðir áður en þau voru myrt.

Sýrlensk yfirvöld viðurkenna að fólkið hafi farist, en kenna hryðjuverkamönnum um morðin.

Árásin var gerð skömmu eftir að Kofi Annan, útsendari Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins fór frá höfuðborginni Damaskus eftir tveggja daga heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×