Erlent

Nýr forseti Þýskalands valinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Joachim Gauck er nýr forseti Þýskalands.
Joachim Gauck er nýr forseti Þýskalands. mynd/ afp.
Joachim Gauck, fyrrverandi prestur, hefur verið kjörinn forseti Þýskalands. Hann var kjörinn af þinginu og fékk 991 atkvæði af 1232. Fréttastofa BBC segir að presturinn hafi engin tengsl við stjórnmálaöfl. Hann hafi aftur á móti unnið sér inn gott orðspor og sé óhræddur við að hreyfa við mikilvægum málefnum. Forveri Gaucks er Christian Wulff en hann sagði af sér í siðasta mánuði vegna fjármálahneykslis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×