Forseti Argentínu afboðar komu sína á Ólympíuleikana 25. júlí 2012 07:05
Pólitík blandast inn í Ólympíuleikana í London eins og oft hefur gerst áður. Cristina Kirchner forseti Argentínu hefur afboðað komu sína á opnunarhátíð leikanna á föstudaginn kemur. Ástæðan fyrir því að Kirchner afboðar komu sína er sennilega hin mikla spenna sem ríkir í samskiptum Breta og Argentínumanna vegna deilna þeirra um Falklandseyjar. Sendiráð Argentínu í London vill hinsvegar ekki gefa upp opinberlega hvað liggur að baki afboðun forsetans. Afboðunin er nokkuð áfall fyrir borgaryfirvöld í London sem hafa stært sig af því að fleiri þjóðhöfðingjar en nokkurn tíman í sögunni muni verða viðstaddir opnunarhátíðina. Hinsvegar andar Alþjóðlega ólympíunefndin léttar því Kirchner hefur hvatt argentínska íþróttamenn á leikunum til að nota þá ekki í pólitískum tilgangi. Grunnt hefur verið á hinu góða milli Breta og Argentínumanna allt þetta ár vegna Falklandseyja. Þannig mun hafa komið til harðra orðaskipta oftar en einu sinni milli David Cameron forsætisráðherra Breta og Krichner vegna deilunnar á fundi G20 ríkjanna í síðasta mánuði.
Mest lesið Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Erlent Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Innlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Innlent Fleiri fréttir Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Sjá meira