Erlent

Grunaðir um morð á sextán sjúklingum

Mynd/AFP
Tveir karlkyns hjúkrunarfræðingar í Uruguay hafa verið ákærðir grunaðir um samtals sextán morð. Annar þeirra er sagður hafa myrt ellefu sjúklinga sína og hinn fimm.

Mennirnir bera því báðir við að um líknardráp hafi verið að ræða en saksóknarar segja að sumir sjúklingana hafi alls ekkert verið dauðvona. Til að mynda hafði staðið til að útskrifa eitt fórnarlambið af spítalanum daginn eftir að hann var myrtur.

Morðingjarnir tveir virðast ekki hafa vitað af hvor öðrum og unnu þeir á sitt hvorum spítalanum í höfuðborginni Montevideo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×