Erlent

Leita að sex ferðmönnum sem lentu í snjóflóði

Frá Sorbmegaisa fjalli. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Frá Sorbmegaisa fjalli. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Björgunarmenn í Tromsø leita nú sex ferðamanna sem lentu í snjóflóði í Kaafjord í norðurhluta Noregs í dag.

Talsmaður lögreglunnar í Tromsø sagði að mennirnir hefðu verið á skíðum við fjallið Sorbmegaisa ásamt nokkrum öðrum ferðamönnum þegar snjóflóðið féll.

Björgunarmenn er nú á leið á vettvang ásamt björgunarþyrlum, norski herinn hefur einnig verið beðinn um að aðstoða við leitina.

Talsmaðurinn sagði að nokkrir mannanna hefðu útvarpssenda meðferðis og því ætti leitin að ganga vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×