Sænskur glæpaforingi myrtur 17. mars 2012 06:00 Jörgen lindskog
Jörgen Lindskog, foringi vélhjólasamtakanna Outlaws í bænum Ronneby í Suður-Svíþjóð, fannst látinn fyrr í vikunni. Augljóst var af verksummerkjum að um morð var að ræða og telur lögregla flest benda til þess að morðið tengist skipulagðri glæpastarfsemi, annað hvort átökum milli glæpagengja eða innan Outlaws. Lindskog, sem var 49 ára gamall og fjögurra barna faðir, átti að mæta fyrir rétt í Karlskrona á þriðjudag, ákærður fyrir hótanir og ofbeldisverk. Hann hefur áður hlotið dóma en þó ekki vegna ofbeldismála. Lindskog mætti hins vegar ekki fyrir réttinn, en fannst svo látinn sex tímum síðar undir bifreið á þjóðvegi í skóglendi skammt utan við Ronneby. Tvö skotsár voru á hnakka hans, en hann hafði verið látinn í nokkurn tíma þegar vegfarendur urðu hans varir og hringdu á lögreglu. Aftonbladet í Svíþjóð segir í umfjöllun sinni um málið að Lindskog hafi verið augljóslega taugatrekktur af einhverjum ókunnum sökum. Heimildir blaðsins herma að ummerki á vettvangi hafi bent til þess að um aftöku hafi verið að ræða. Lögregla útilokar ekki að morðið tengist illdeilum Outlaws við annan klúbb, Red and White Crew að nafni, sem er stuðningsklúbbur Hells Angels í Svíþjóð, en einnig hafa verið átök innan Outlaws upp á síðkastið.- þj
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Fleiri fréttir Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Sjá meira