Kynferðisbrotamál teygir anga sína til Íhaldsflokksins Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. nóvember 2012 07:58 David Cameron forsætisráðherra vill rannsókn á kynferðisglæpum tengdum Íhaldsflokknum. Mynd/ AFP.
David Cameron hefur fyrirskipað rannsókn á því hvernig staðið var að meðferð kynferðisbrotamála sem komu upp á barnaheimili í Wales fyrir nokkrum áratugum síðan. Cameron tilkynnti þetta þegar hann var á ferð í Abu Dhabi í gær. Ástæðan er sú að þolandi kynferðisofbeldis segir að einn þeirra sem hafi misnotað börnin á barnaheimilinu hafi verið einstaklingur úr Íhaldsflokknum, flokki Camerons. Hann hafi misnotað börnin á áttunda áratug síðustu aldar. Cameron sagði að barnaníð væri viðurstyggilegur glæpur, að ásakanirnar sem hefðu komið fram væru verulega hrollvekjandi og ekki væri hægt að hundsa þær. Hann ætlaði því að grípa til aðgerða. Cameron sagðist ætla að fá óháðan aðila til þess að rannsaka málið, hvort upphafleg rannsókn á því hafi farið fram með eðlilegum hætti og rannsakendur unnið starf sitt eðlilega. Umrædd kynferðisbrot eru sögð hafa átt sér stað á heimili fyrir munaðarlaus börn í Wales á áttunda og níunda áratugnum. Einn þolenda segir að hann hafi verið tekinn af heimilinu og seldur í vændi á nálægu hóteli. Það var Sky fréttastofan sem greindi frá.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira