Joachim Löw: Skiptir engu máli hvort menn syngi þjóðsönginn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. ágúst 2012 19:00 Nordicphotos/Getty
Landsliðsmenn Þýskalands eiga ekki að vera dæmdir af því hvort þeir syngi þjóðsönginn fyrir landsleiki. Þetta segir Joachim Löw, þjálfari karlalandsliðs Þýskalands í knattspyrnu. „Það er gott mál að syngja þjóðsönginn en það segir ekkert til um gæði leikmanna og er alls ekki merki um að leikmaður sé ekki tilbúinn að gefa allt í leikinn þó hann syngi ekki," segir Löw í viðtali við þýska blaðamenn. Þjóðverjar mæta Argentínu í æfingaleik á morgun en sumir leikmenn landsliðsins hafa verið gagnrýndir fyrir að taka ekki undir þegar þjóðsöngurinn er spilaður fyrir landsleiki. „Við erum stoltir af öllu því glæsilega sem liðið gerir og hlut landsliðsins í sameiningu Þýskalands," segir Löw en fjölmargir leikmenn þýska landsliðsins sækja uppruna sinn til landa á borð við Pólland og Tyrkland. Löw reiknar með hinum 34 ára framherja Miroslav Klose í undirbúningi liðsins fyrir HM í Brasilíu árið 2014. „Ef Miro er í nægilega góðu formi er hann einn besti framherji í heiminum. Ég mun leggja drög að áætlun fyrir næstu tvö árin með honum," segir Löw. Klose segist sjálfur reikna með því að lokakeppnin í Brasilíu verði sín síðasta. „Verði ég hraustur og held áfram að standa mig vona ég að ég geti lokið landsliðsferlinum í lokakeppni heimsmeistaramótsins 2014," segir Klose sem er næstmarkahæsti leikmaður í lokakeppni heimsmeistaramóts frá upphafi með 14 mörk ásamt Gerd Müller.
Fótbolti Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Íslenski boltinn Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjör og viðtöl: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Sjá meira