Erlent

Gæfi sér fyrstu einkunn sjálfur

MAhmoud Ahmadinejad
Virti spurningar þingsins varla viðlits.
MAhmoud Ahmadinejad Virti spurningar þingsins varla viðlits. fréttablaðið/AP
Íranska þingið yfirheyrði í gær Mahmoud Ahmadinejad forseta vegna margvíslegra ásakana um spillingu, mistök í starfi og lítilsvirðingu sem hann á að hafa sýnt klerkastéttinni.

Sjálfur gaf hann lítið fyrir þessar spurningar, sagði þær illa samdar en sjálfur hefði hann hæglega getað gefið þeim ráð um markvissari spurningar.

Varðandi frammistöðu sína í starfi sagðist hann eiga skilið að fá fyrstu einkunn. Allt annað væri dónalegt.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×