Segjast bjartsýn á viðræður 31. janúar 2012 03:30 Íranskir mótmælendur tóku á móti nefnd alþjóðlega kjarnorkueftirlitsins á flugvellinum á mánudag. nordicphotos/AFP
Írönsk stjórnvöld hafa boðið sendifulltrúum Kjarnorkustofnunar Sameinuðu þjóðanna að vera lengur í landinu en þrjá daga, eins og upphaflega stóð til. Þetta er fyrsta heimsókn fulltrúa Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar til Írans frá því stofnunin sendi frá sér skýrslu í nóvember, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að sumar kjarnorkutilraunir Írana geti vart haft annan tilgang en þann, að gera framleiðslu kjarnorkuvopna mögulega. Evrópusambandið, Bandaríkin og fleiri ríki hafa samþykkt refsiaðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuáforma þeirra og krafist þess að kjarnorkueftirlitið fái að ganga úr skugga um hvað Íranar eru að gera. Ali Akbar Salehi, utanríkisráðherra Írans, segist bjartsýnn á að viðræður við kjarnorkueftirlitið skili árangri. Íranar hafa hins vegar hótað því að loka Hormús-sundi, sem er mikilvæg siglingaleið með olíu frá Persaflóa, telji þeir refsiaðgerðir vera orðnar of harkalegar. Sendinefndin frá kjarnorkueftirlitinu hefur ekkert látið uppi um störf sín í Íran síðan hún kom þangað á mánudag, en niðurstöður heimsóknarinnar ráða miklu um frekari viðbrögð annarra ríkja. Ísraelar hafa leynt og ljóst hótað árásum á Íran til að eyðileggja kjarnorkuver og aðra starfsemi sem tengist kjarnorkuvinnslu.- gb
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira