Stjórnarskrá gerð í kappi við dómsvald Guðsteinn skrifar 30. nóvember 2012 08:00 Á þriðja degi mótmælanna höfðu margir tjaldað á Tahrir-torgi í Kaíró, eins og gert var þegar mótmælin gegn Hosni Mubarak voru í hámarki.NORDICPHOTOS/AFP
Stjórnlagaþing Egyptalands samþykkti í gær frumvarp að stjórnarskrá, sem meðal annars felur í sér að sjaría-lög múslíma verði áfram grunnur stjórnskipunar landsins. Fjölmenn mótmæli hafa verið í borgum landsins undanfarna daga, bæði gegn stjórnlagaþinginu og gegn tilskipunum Muhammeds Morsi forseta, sem í síðustu viku tók sér einhliða nánast alræðisvöld í landinu. Íslamistar, sem leggja áherslu á að trúin sé undirstaða stjórnmála, eru í meirihluta í stjórnlagaþinginu sem kosið var til fyrr á árinu. Kristnir og veraldlega sinnaðir þingmenn eru andsnúnir frumvarpinu og hafa sumir sagt sig úr stjórnlagaþinginu. Mohammed Morsi forseti fær svo það hlutverk að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvarpið, sem líklega verður haldin strax um miðjan desember. Atkvæðagreiðslunni um frumvarpið var skyndilega hraðað í gær, en upphaflega var hún ekki á dagskrá fyrr en eftir tvo mánuði. Ótti við að hæstiréttur landsins dæmi stjórnlagaþingið ógilt nú um helgina varð til þess að stjórnlagaþingsmenn ákváðu að hraða málinu. Samkvæmt tilskipun Morsi forseta í síðustu viku tók hann sér ekki aðeins alræðisvöld sjálfur heldur nam hann jafnframt einhliða úr gildi heimildir dómstóla til að skipta sér af stjórnlagaþinginu. Ekkert benti þó til þess að dómstólar landsins hefðu í hyggju að taka mark á þessum tilskipunum forsetans. Ekkert lát er á mótmælum gegn Morsi, sem kosinn var forseti í júní. Mótmælendurnir eru afar ósáttir við að hann hafi snúið byltingunni gegn Hosni Mubarak og stjórn hans upp í herferð íslamista til að ná völdum í landinu. Hann taki eigin völd og skoðanir fram yfir vilja byltingarhreyfingarinnar. Sjálfur segist Morsi hins vegar vera að tryggja framgang byltingarinnar með því að taka sér aukin völd og koma í veg fyrir að dómstólar geri störf stjórnlagaþingsins að engu.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira