Erlent

Grýttu eggjum í Sarkozy í borginni Bayonne

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti þurfti að flýja inn á bar í borginni Bayonne í gærdag eftir að hundruðir mótmælenda þar hófu að kasta í hann eggjum.

Sarkozy var á leið á toppfund í Bruxelles og ákvað að nota tækifærið til að heimsækja Bayonne í leiðinni enda er kosningabaráttanum um forsetaembættið hafin í Frakklandi. Þar fékk forsetinn óblíðar móttökur.

Sarkozy þurfti að dvelja svo lengi inni á barnum, meðan að hann beið eftir því að mótmælendurnir róuðust, að hann kom alltof seint á fundinn í Bruxells.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×