Erlent

Romney sigraði í Washington

mynd/AP
Mitt Romney styrkti stöðu sína í kapphlaupinu um útnefningu forsetaefnis Repúblikanaflokkksins vestanhafs en hann sigraði í forvali flokksins í Washington-fylki í gær.

Stuttu áður hafði hann sigrað í bæði Michigan og Arizona og þykir sigurstranglegastur af þeim fjórum frambjóðendum sem eftir standa.

Romney hefur þó ekki enn tryggt sér útnefningu Repúblikanaflokksins.

Næstkomandi þriðjudagur er gríðarlega mikilvægur og mun líklega skera úr um hver hlýtur útnefningu flokksins en þá verður kosið samtímis í tíu fylkjum, venju samkvæmt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×