Erlent

Loftsteinn hrapaði yfir Englandi

Geimferðastofnun Evrópu hefur staðfest að um loftstein var að ræða. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Geimferðastofnun Evrópu hefur staðfest að um loftstein var að ræða. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mynd/AFP
Fregnir af risavöxnum eldhnetti sem ferðaðist yfir norður Skotland og suður England bárust í nótt. Fjöldi símtala bárust lögregluyfirvöldum á svæðunum og óttaðist fólk að flugvél hefði hrapað.

Geimferðastofnun Evrópu hefur staðfest að um loftstein var að ræða.

Vitni segja að appelsínugul ljósrák hafi myndast á næturhimninum sem síða hvarf snögglega.

Loftsteinar falla reglulega til jarðar og eru oftar en ekki kallaðir stjörnuhröp. Flestir loftsteinar brenna upp í andrúmslofti jarðarinnar en það gerist þó að stærri steinar brjótist í gegnum lofthjúpinn og lendi á jörðinni - ekki vitað hvort að það gerðist í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×