Erlent

Sjö létust í skotárásinni á skóla í Oakland

Ljóst er að sjö létust og þrír særðust í skotárásinni á kristilegan menntaskóla í Oakland í Kaliforníu í gærdag.

Lögreglan hefur árásarmanninn í haldi en hann er 43 ára gamall Kóreumaður búsettur í Oakland og fyrrum nemandi við skólann. Þ

Enn er ekki vitað um ástæður þess að maðurinn réðist á nemendur skólans með fyrrgreindum afleiðingum en skólinn er eingöngu ætlaður fólki frá Kóreu og Bandaríkjamönnum sem eiga ættir að rekja til Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×