Ungverjar breyti lögunum 14. janúar 2012 04:00 José Manuel Barroso
Stjórnvöld í Ungverjalandi eru reiðubúin að falla frá umdeildum breytingum á stjórnarskrá og löggjöf landsins, komi í ljós að þær brjóti í bága við Evrópurétt. Þetta sagði José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í fyrradag. Barroso sagði að framkvæmdastjórnin myndi næstkomandi þriðjudag birta úttekt sína á lagabreytingunum. Komist hún að þeirri niðurstöðu að þær fari í bága við lög ESB, er líklegt að beitt verði refsiaðgerðum. Þær gætu bæði faliðí sér að Ungverjar fengju ekki fjárhagsaðstoð sem þeir þurfa sárlega á að halda og að þeir yrðu útilokaðir frá atkvæðagreiðslum í ráðherraráði ESB. Ungverjar hafa til þessa látið viðvaranir framkvæmdastjórnar ESB sem vind um eyrun þjóta, en Barroso upplýsti að á fundi á miðvikudag hefðu ungversk stjórnvöld lýst sig reiðubúin til að skoða að breyta lögunum á ný, yrði niðurstaðan sú að breytingarnar brytu í bága við lög Evrópusambandsins. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að Ungverjaland fari eftir lögum og grundvallarreglum Evrópusambandsins og ég er sannfærður um að við náum því fram,“ sagði Barroso. - óþs
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Sjá meira