Erlent

Kráin The Hobbit verður að breyta um nafn

Eigendum lítillar kráar í Southampton í Englandi hefur verið hótað málssókn af fyrirtækinu Saul Zaentz í Kaliforníu.

Hótunin er vegna nafnsins á kránni sem er The Hobbit eða Hobbitinn en Saul Zaents á höfundaréttinn að helstu verkum JRR Tolkien þar á meðal bókunum The Hobbit og The Lord of the Rings.

Eigandi krárinnar segist ekki geta barist við Hollywood í þessu máli. Því verður nafni kráarinnar breytt og þar verður ekki lengur hægt að fá kokteila með nöfnum eins og Gandalf og Frodo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×