Erlent

Rútuslys kostaði 22 börn lífið í Sviss

Rútuslys í Sviss í gærkvöldi kostaði 28 manns lífið þar af 22 börn. Rútan, sem var full af belgískum farþegum á leið heim frá skíðafríi, keyrði á vegg í undirgöngum hraðbrautar í Valais kantónunni í suðurhluta Sviss með fyrrgreindum afleiðingum.

Björgunarmenn hafa unnið í alla nótt á slysstað en alls voru 52 farþegar um borð í rútunni. Margir þeirra sem lifðu af slysið eru illa slasaðir og voru þeir fluttir með þyrlum á nærliggjandi sjúkrahús. Flestir farþeganna voru 12 ára gamlir nemendur.

Báðir ökumenn rútunnar fórust í slysinu en ekki er vitað um tildrög þess.

Svissneska lögreglan hefur komið upp neyðarlínum fyrir þær fjölskyldur sem áttu ættingja í rútunni þar sem þær geta aflað sér upplýsinga um stöðu mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×