Erlent

Fjármálareglur í þjóðaratkvæði

Utanríkisráðherra Írlands boðar upplýsingaherferð.
nordicphotos/AFP
Utanríkisráðherra Írlands boðar upplýsingaherferð. nordicphotos/AFP
Írska stjórnin hefur ákveðið að efna til kosninga 31. maí um fjármálabandalag Evrópusambandsins. Írland er eina aðildarríkið sem ber þessar breytingar á Evrópusáttmálanum undir þjóðina.

„Stjórnin ætlar að vera með umfangsmikla upplýsingaherferð til að tryggja að kjósendur séu upplýstir um inntak sáttmálans,“ segir Eamon Gilmore utanríkisráðherra.

Fjármálabandalagið, sem flest aðildarríki evrusvæðisins hafa undirritað, herðir kröfur um aðhald í ríkisfjármálum og veitir heimildir til að refsa þeim ríkjum, sem standast ekki kröfurnar.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×