Erlent

Gyðingahatur virðist fara vaxandi í Frakklandi

Gyðingahatur virðist fara vaxandi í Frakklandi í kjölfar árásarinnar á gyðingaskóla í Toulouse nýlega sem kostaði fjóra lífið þar af þrjú börn.

Fjallað er um málið á BBC og nokkur dæmi tekin af auknu hatri á gyðingum. Nýjasta dæmið er árás unglinga á 12 ára gamlan nemenda gyðingaskóla í París í gær. Unglingarnir réðust á nemendann fyrir utan skólann, börðu hann og sögðu hann skítugan gyðing.

Af öðrum dæmum frá árásinni í Toulouse má nefna skothríð á Yitzhak-Rabin tónlistarskólann í París, veggjakrot til stuðnings árásarmanninum í Toulouse á vegg bænahúss gyðinga í borginni og tilraun til að kúga fé frá eigenda næturklúbbs, af gyðingaættum, í Dijon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×