Nýtt krabbameinslyf vekur athygli 28. mars 2012 22:00 Rannsóknir þeirra gefa til kynna að hægt að verði að þróa eitt lyf sem barist getur gegn mörgum tegundum krabbameins.
Vísindamenn við læknisfræðideild háskólans í Stanford í Bandaríkjunum hafa þróað byltingarkennda aðferð við meðferð krabbameins. Rannsóknir þeirra gefa til kynna að hægt að verði að þróa eitt lyf sem barist getur gegn mörgum tegundum krabbameins. Rannsókn vísindamannanna hverfðist um prótínið CD47 og einstaka virkni þess. Prótínið kemur í veg fyrir að ónæmiskerfið ráðist gegn frumum. Vandamálið er að CD47 er einnig að finna í krabbameinsfrumum, þar af leiðandi tekst sýktum frumum að dafna. Það var líffræðingurinn Irving Weissman sem stjórnaði rannsókninni. Irving og samstarfsmenn hans komu æxlum fyrir í músum og gáfu þeim síðan lyf sem eyðir CD47 prótíninu. Niðurstöðurnar þóttu merkilegar. Krabbameinið í þeim músum sem fengið höfðu lyfið dreifði sér nær aldrei. Rannsóknin sýndi einnig fram á að lyfið orsakaði minnkun æxla. Það eru þó ókostir sem fylgja eyðingu CD47 prótínsins því lyfið hefur einnig áhrif á heilbrigðar frumur. Í rannsóknarniðurstöðum Weissmans kemur fram að fórnarkostnaður sé ekki mikill og að meðhöndlun krabbameins komi ávallt til með að vega þyngra en áhrif meðferðarinnar á heilbrigðar frumur. Rannsóknarniðurstöðurnar hafa vakið töluverða athygli og hefur Weissman og samstarfsmenn hans fengið 20 milljón dollara fjárveitingu frá heilbrigðisyfirvöldum í Kaliforníu. Hægt er að nálgast rannsóknargögn Weissmans hér.
Mest lesið „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent Gular viðvaranir taka gildi Veður Fleiri fréttir Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Sjá meira