Innlent

Bleyjur, túrtappar og smokkar hækka í verði - "Ég er ekki að grínast“

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu harðlega á Alþingi í morgun fyrirætlanir stjórnarmeirihlutans um að hækka tolla á hluti eins og hjólastóla, bleyjur og smokka. Stjórnarliðar eru sakaður um að hafa ætlað að læða hækkununum inn í skjóli nætur.

Um er að ræða frumvarp um Lækningatæki, aukið eftirlit með þeim og skráningu. Í frumvarpinu er einnig að finna lista yfir ýmsar vörur sem við gildistöku laganna fá á sig nýtt gjald, svokallað eftirlitsgjald af lækningatækjum. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á málinu í morgun undir liðnum störf þingsins.

„Í gærkvöldi, þegar farið var að skyggja og nokkuð ljóst að enginn fjölmiðlamaður var á svæðinu, var upplýst um það að það á að skattleggja hjólastóla, bleyjur og smokka. Virðulegur forseti, ég er ekki að grínast," sagði Guðlaugur Þór.

Hann benti einnig á að skattlagning á þessi tæki kæmi harðast niður á heilbrigðisstofnunum og að skatturinn næmi um þrjátíu og tveimur milljónum á þær stofnanir. „Og þá læðir háttvirtur stjórnarmeirihluti þessu hérna inn í skjóli nætur."

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, sem á sæti á velferðarnefnd sem málið heyrir undir, hvaddi sér einnig hljóðs til þess að ræða um frumvarpið og hún gagnýndi harðlega hvaða hluti verið væri að flokka sem lækningatæki.

„Undir þessa skilgreiningu um lækningatæki falla hlutir eins og til dæmis smokka, dömubindi, tíðartappa, linsuvökva og tannþráð."

Unnur Brá krafðist þess úr ræðustól að nefndin taki málið aftur til sín og endurskoði listann yfir tollflokkana sem um ræðir því þar væru fjölmargir hlutir sem engan veginn væri hægt að skilgreina sem lækningatæki.

Formaður velferðarnefndar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fór einnig í pontu.

„Markmið frumvarpsins er að styrkja og efla eftilit með lækningatækjum á markaði með það að leiðarljósi að öryggi sjúklinga sé best tryggt."

Hvað varðar tollaflokkanna sagði Sigríður Ingibjörg eðlilegt að nefndin taki málið aftur inn á borð til sín og endurskoði tollflokkana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×