Southgate: Samkynhneigðir velkomnir í klefann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. nóvember 2012 22:15 Gareth Southgate spilaði 57 landsleiki sem miðvörður enska landsliðsins. Nordicphotos/Getty
Gareth Southgate, fyrrum landsliðsmaður Englands, telur að leikmenn myndu bjóða samkynhneigða knattspyrnumenn velkomna í búningsklefann. Southgate tjáði sig í kjölfarið á því að Anders Lindegaard, markvörður Manchester United, lýsti því yfir að samkynhneigðir þyrftu á fyrirmynd í knattspyrnuheiminum að halda. Þrátt fyrir að stór nöfn íþróttamanna af hvoru kyni hafi komið út úr skápnum undanfarin ár er Justin Fashanu eini þekkti knattspyrnumaðurinn sem opinberað hefur samkynhneigð sína. 22 ár eru liðin síðan Fashanu kom út úr skápnum en opinberun hans vakti mikla athygli. Sorglegur endir var á sögu framherjans sem framdi sjálfsmorð nokkrum árum síðar. „Það þarf einhvern nógu hugrakkan til að vera opinn og einlægur," segir Southgate um þann samkynhneigða karlmann sem gæti stigið stórt skref í heimi atvinnuknattspyrnumanna með því að koma út úr skápnum. „Leikmenn blanda geði við önnur þjóðerni, kynþætti og trúarbrögð þannig að ég sé enga ástæðu fyrir því að samkynhneigð ætti að vera vandamál í búningsklefanum," segir Southgate sem hefur meiri áhyggjur af viðbrögðum stuðningsmanna. „Við getum ekki stjórnað stuðningsmönnum og vitanlega verða skoðanir skiptar í samfélaginu. Í sannleika sagt getum við þó ekki svarað því hvernig fólk mun bregðast við fyrr en einhver stígur fram í sviðsljósið," segir Southgate.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira