Erlent

Mannskæður eldsvoði í verksmiðju

Frá brunanum í gærkvöldi.
Frá brunanum í gærkvöldi. Mynd/AFP
Yfir hundrað létust í eldsvoða sem braust út í fataverksmiðju í höfuðborg Bangladesh, Dhaka, seint í gærkvöldi. Verksmiðjan er á mörgum hæðum í úthverfi höfuðborgarinnar.

Sumir létust þegar þeir stukku út um glugga á efri hæðum hússins til þess að forðast eldtungurnar.

Ekki er ljóst hvað olli brunanum þótt grunur leiki á bilun í rafmagni en vitað er að eldurinn kom upp á jarðhæð hússins þannig að fjöldi fólks festist inn í byggingunni.

Snemma í morgun tókst slökkviliðsmönnum loks að ráða niðurlögum eldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×