Erlent

Vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði

Artur Mas, forseti Katalóníu.
Artur Mas, forseti Katalóníu. Mynd/AFP
Stuðningsmönnum þess að sjálfstjórnarhéraðið Katalónía á Spáni verði sjálfstætt og skilið frá Spáni hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu, en þjóðernissinnar í Katalóníu vilja halda sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu í héraðinu um málið.

Þingkosningar standa nú yfir í Katalóníu en þeir flokkar sem vilja lýsa yfir sjálfstæði hafa mælst með mikinn stuðning í skoðanakönnunum.

Talið er að ekki verði hægt að skilja frá Katalóníu með þjóðaratkvæðagreiðslu án breytinga á spænsku stjórnarskránni en talið er að núverandi ríkisstjórn muni standa í vegi fyrir slíkum breytingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×