Aðdáendur Bieber brjálaðir - Umboðsmaður hans vakti fyrst athygli á laginu 25. nóvember 2012 11:52 814.000.000 er ágæt tala.
Myndbandið við hið geysivinsæla lag Gangnam Style, með suður-kóreska tónlistarmanninum Psy, varð í gær vinsælasta myndband allra tíma á YouTube. Árangurinn þykir hreint út sagt ótrúlegur ekki síst fyrir þær sakir að lagið var sett inn á síðuna í júlí síðastliðnum. Frá þeim tíma hefur það verið spilað átta hundruð og fjórtán milljón sinnum á síðunni, sem er mesta áhorf á myndband á síðunni. Í myndbandinu er gert gys að neysluhyggju í hinu fína Gangnam-hverfi í suður-kóresku höfuðborginni Seoul, en flestir auðugustu íbúar borgarinnar búa þar. Í myndbandinu ferðast hann um borgina á hraðbátum og dýrum sportbílum, dansar meðal annars fræga dansinn á skemmtistöðum fína fólksins og í jógatímum. Með þessu segir Psy að hann vilji vekja athygli á bilinu á milli ríkra og fátækra sem eykst með hverjum deginum. Lagið hefur farið sigurför um heiminn og náð toppsætinu í tuttugu og átta löndum. Psy, sem er þrjátíu og fjögurra ára, hefur nú gert plötusamning í Bandaríkjunum. Þá hefur hann komið fram á verðlaunahátíð MTV-sjónvarpsstöðvarinnar, kennt söngkonunni Britney Spears dansinn í þættinum Ellen og sungið í X-factor-þáttunum. Ban Ki Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tók meira að segja dansinn með honum í höfuðstöðvum samtakanna í New York á dögunum. Framkvæmdastjórinn sagði á blaðamannafundi að hann vildi vinna með Psy til að vekja athygli á ójöfnuðinum í heiminum. Og æðið hefur að sjálfsögðu náð hingað til lands því fyrr í þessum mánuði slógu nemendur Hraunvallaskóla í Hafnarfirði Íslandsmet þegar yfir þúsund manns tóku þátt í að dansa Gangnam-Style dansinn. Söngvarinn Psy, heitir í raun Park Jæ-sang og er þrjátíu og fjögurra ára gamall. Hann er þekktur tónlistarmaður í suður-kóreu og hefur gefið út sex breiðskífur. Árið 2006 giftist hann unnustu sinni til þriggja ára og eiga þau tvíburadætur. Þar til í gær var það ungstirnið Justin Bieber sem átti mest spilaða lagið á Youtube, "Baby" frá árinu 2010. Aðdáendur söngvarans eru ekki sáttir með að suður-kóreska stjarnan vermi nú fyrsta sætið, og hafa látið reiði sína í ljós í athugasemdarkerfi Youtube. Aðdáendur Bieber gætu raunar hugsað umboðsmanni hans þegjandi þörfina því hann var fyrsti maðurinn í Bandaríkjunum til þess að setja link á Gangnam Style á Twitter sínu sína, fyrir fjórum mánuðum síðan.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Brottvísanir verði beittasta vopnið Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Fleiri fréttir Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Sjá meira