Erlent

Herinn mættur á Manhattan

BBI skrifar
Fjölda hertrukka var í gærkvöldi ekið inn í þann hluta New York borgar sem enn er rafmagnslaus eftir að fellibylurinn Sandy gekk yfir borgina. Þar hafa þeir verið síðan í gær, en talið er að þetta sé gert í öryggisskyni.

Stór hluti borgarinnar er enn rafmagnslaus og því gerir þar svartamyrkur á næturnar. Því hefur þótt rétt að herinn væri til staðar til að vernda almenning gegn hugsanlegum glæpum við þær aðstæður. „Ef einhver ætlar að nýta sér þessar skelfilegu aðstæður og gera þær enn verri þarf hann að kljást við herinn fyrst," sagði sjónvarpsfréttamaður sem fjallaði um komu hersins í myndskeiði sem ná nálgast hér.

Herinn er ekki síður kominn til Manhattan til að dæla burt vatni úr neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar. Herinn hefur keypt 250 hátæknidælur í því skyni og hóf hreinsunina í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×