Erlent

Bananar gætu orðið undirstöðufæða í framtíðinni

Bananar gætu orðið undirstöðufæða fyrir fólks í náinni framtíð svipað og kartöflur og korn eru í dag.

Þetta kemur fram í skýrslu sérfræðinga sem unnin var fyrir matvælaöryggisnefnd Sameinuðu þjóðanna. Þar segir að loftslagsbreytingar muni hafa þau áhrif að ræktun á maískorni, hrísgrjónum og hveiti muni dragast saman í þróunarríkjunum. Hið sama gildir um kartöflur sem þrifast best á köldum svæðum á jörðinni.

Hinsvegar gætu ýmis afbrigði af banönum komið í staðinn þar sem hækkandi hitastig geri ræktun þeirra mögulega víðar í heiminum en nú er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×