Erlent

Þráðlaus sjúkdómsgreining á tíu mínútum

Microflow.
Microflow. mynd/asc-csa.gc.ca
Geimferðastofnun Kanada þróar nú flæðismásjá sem getur greint helstu sjúkdóma á  nokkrum mínútum, og það þráðlaust í þokkabót.

Fyrstu tilraunir með tækið, sem er stærð við brauðrist, munu fara fram í alþjóðlegu geimstöðinni í desember á þessu ári.

Tækið, sem er kallað Microflow, er aðeins tíu kíló að þyngd og hentar því afar vel til geimferða. Tækið greinir samsetningu agna og einda og skilar síðan sjúkdómsgreiningu.

Kanadísku vísindamennirnir halda því fram að ef tækið virkar sem skyldi þá muni það bylta læknaþjónustu í þróunarlöndum sem og í geimnum.

Hægt er að nálgast fréttatilkynningu kanadísku geimferðastofnunarinnar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×