Fótbolti

Jafntefli hjá Rangers í fyrsta leiknum utan efstu deildar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Skoska knattspyrnufélagið Rangers slapp með skrekkinn í fyrsta leik sínum í D-deild skoska boltans í gær.

Rangers, sigursælasta lið skoska boltans, var tekið til gjaldþrotaskipta í sumar og hóf því leik að nýju í neðstu deild skosku knattspyrnunnar.

Andstæðingurinn í fyrsta leiknum í gær var lið Peterhead frá samnefndum 17 þúsund manna bæ á austurströnd Skotlands. Fjögur þúsund áhorfendur troðfylltu heimavöll liðsins þegar stórliðið kom í heimsókn.

Eftir að Rangers komst yfir gerðu heimamenn hið ótrúlega og náðu forystunni. Andy Little jafnaði fyrir Rangers í viðbótartíma og tryggði liðinu eitt stig.

„Mér var létt að fá stig úr leiknum. Mér fannst varnarleikurinn fyrir neðan allar hellur og mættum þeim ekki í baráttunni. Ef strákarnir reiknuðu með því að lífið í D-deildinni yrði létt ættu þeir að vita betur núna," sagði Ally McCoist knattspyrnustjóri Rangers.

Leikurinn var sá fyrsti hjá Rangers utan efstu deildar í 140 ára sögu félagsins. Leikurinn gegn Peterhead átti að marka upphafið á leið félagsins upp á við en það tókst ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×