Fótbolti

Walcott dregur sig út úr landsliðshópnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Theo Walcott, kantmaður Arsenal, hefur dregið sig út úr enska landsliðshópnum. England mætir Ítalíu í æfingaleik í Bern annað kvöld.

Walcott mætti til æfinga með landsliðinu í gær þrátt fyrir minniháttar meiðsli á læri. Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, taldi þó ekki rétt að Walcott færi með liðinu til Sviss og er hann í umsjá læknateymis Arsenal.

Liðsfélagi Walcott hjá Arsenal, Alex Oxlade-Chamberlain, hafði þegar dregið sig úr landsliðinu líkt og markvörðurinn Joe Hart og framherjinn Daniel Sturridge.

Jolean Lescott, varnarmaður Manchester City, er sá eini sem kallaður hefur verið í landsliðið vegna forfalla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×