Fótbolti

Prandelli: Reyndum að keyra okkur ekki út

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Prandelli reynir að hughreysta Balotelli eftir tapið í Kænugarði.
Prandelli reynir að hughreysta Balotelli eftir tapið í Kænugarði. Nordicphotos/Getty
Cesare Prandelli, landsliðsþjálfari Ítala, var að vonum svekktur eftir 4-0 tapið gegn Spánverjum í úrslitaleik Evrópumótsins í Kænugarði í kvöld. Hann var þó stoltur af leikmönnum sínum.

„Við sáum strax í upphafi að Spánverjarnir virkuðu ferskari en við enda fór mikil orka hjá okkur í leikina í vikunni," sagði Prandelli og sagði lið sitt í sjálfu sér ekki hafa gert neitt rangt í leiknum.

„Við áttuðum okkur strax á því að við þyrftum að fara að öllu með gát til að þess að keyra okkur ekki út því við vorum í slæmum málum líkamlega séð," sagði Prandelli en skilja má á orðum hans að ítölsku leikmennirnir hafi verið þreyttir eftir leikina í átta liða og undanúrslitum keppninnar.

Prandelli getur borið höfuðið hátt. Fæstir áttu von á að Ítalir kæmust alla leið í úrslitaleikinn en liðið lenti í skakkaföllum fyrir mótið og voru væntingar í lágmarki.

„Þetta var frábært mót hjá okkur og ég óska strákunum til hamingju," sagði Prandelli.

Prandelli tók við landsliði Ítala að loknu heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku árið 2010. Þar hafnaði landsliðið í neðsta sæti síns riðils sem innihélt landslið Paragvæ, Slóvakíu og Nýja-Sjálands.


Tengdar fréttir

Torres fær gullskóinn

Fernando Torres varð markakóngur Evrópumeistaramótsins í Póllandi og Úkraínu með þrjú mörk en hann skoraði þriðja mark Spánar gegn Ítalíu í kvöld eftir að hafa komið inná sem varamaður. Torres lagði auk þess fjórða markið upp sem Juan Mata skoraði.

Umfjöllun: Spánn - Ítalía 4-0 | Spánn Evrópumeistari

Spánn sigraði Ítalíu 4-0 í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins í kvöld og varð þar með fyrsta þjóðin til að vinna tvö Evrópumeistaramót í röð. Spánn sýndi allar sínar bestu hliðar í leiknum og var 2-0 yfir í hálfleik.

Jordi Alba: Vinir mínir sögðu að ég myndi skora

Jordi Alba, vinstri bakvörður Spánverja, kórónaði frábæra keppni með því að skora annað mark Spánverja gegn Ítölum í dag. Þetta var um leið fyrsta landsliðsmark kappans.

Del Bosque: Ætlaði ekki að vera sigursæli þjálfarinn

Vicente Del Bosque, landsliðsþjálfari Spánverja, var hógværðin uppmáluð eins og venjulega í leikslok þrátt fyrir að Spánn hefði skráð sig á spjöld knattspyrnusögunnar á fleiri enn einn hátt.

Del Bosque jafnaði afrek Helmut Schön

Vicente del Bosque þjálfari Spánar er fyrsti þjálfarinn til að stýra liði til sigurs á Evrópumeistaramóti og Heimsmeistaramóti frá því að Helmut Schön afrekaði það með Vestur-Þýskalandi á EM 1972 og HM 1976.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×