Fótbolti

Olympiakos grískur bikarmeistari í knattspyrnu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Liðsmenn Olympiakos fagna titlinum í Aþenu í kvöld.
Liðsmenn Olympiakos fagna titlinum í Aþenu í kvöld. Mynd / olympiacos.org
Olympiakos fullkomnaði því sem næst tímabilið með 2-1 sigri á Atromitos í úrslitum gríska bikarsins á Ólympíuleikvanginum í Aþenu í kvöld. David Fuster var hetja liðsins en hann skoraði sigurmarkið með skalla undir lok framlengingar.

Olympiakos, sem á dögunum tryggði sér sinn 38. Grikklandsmeistartitil, komst yfir á 29, mínútu með marki framherjans Rafik Djebbour.

Walter Iglesias jafnaði metin fyrir Atromitos stundarfjórðungi fyrir leikslok svo framlengja þurfti leikinn. Spánverjinn David Fuster tryggði Olympiakos sigur sem fyrr segir undir lok framlengingar en hann hafði komið inn á sem varamaður í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×