Erlent

Frakkar vísa róttækum islamistum úr landi

Yfirvöld í Frakklandi hafa vísað tveimur róttækum islamistum úr landi og til stendur að vísa þremur í viðbót úr Frakklandi.

Þetta virðist vera svar yfirvalda við skotárásinni í Toulouse þar sem Mohammed Merah drap sjö manns, þar af þrjú börn, áður en hann var felldur sjálfur í árás sérsveitar lögreglunnar.

Fyrrgreindir menn eru hluti af 19 islamistum sem franska lögreglan handtók nýlega í Toulouse og nágrenni í tengslum við rannsóknina á árás Merah. Samhliða handtökunum var lagt hald á töluvert af vopnum hjá þessum mönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×