Erlent

Öflugasta herskip Breta á leið til Falklandseyja

Eitt stærsta og öflugasta herskip Breta, tundurspillirinn HMS Dauntless er á leið til Falklandseyja.

Sigling þessa herskips hefur aukið verulega á spennuna í samskiptum Breta og Argentínumanna. Stjórnvöld í Argentínu hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna yfir komu herskipsins til Falklandseyja og segja að með henni séu Bretar að hervæða hafsvæðið í kringum eyjarnar.

Þetta er fyrsta aðgerðarverkefni HMS Dauntless síðan að skipinu var hleypt af stokkunum árið 2010. Um borð í því er nægilegt magn af flugskeytum til að skjóta niður allar herþotur Argentínumanna og raunar nágrannaþjóða landsins einnig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×