Erlent

Meirihluti Dana vill ekki taka upp evruna

Mikill meirihluti Dana myndi hafna upptöku evrunnar ef kosið yrði um málið í dag.

Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem unnin var fyrir Danske Bank. Samkvæmt henni myndu 57,5% Dana hafna evrunni og rúmlega 12% til viðbótar myndu sennilega hafna evrunni. Hinsvegar myndu tæplega 28% velja evruna eða sennilega velja hana.

Þessar niðurstöður eru samhljóma könnun sem gerð var fyrr í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×