Erlent

Mikið mannfall í Írak eftir röð sprengjuárása

Frá vettvangi í Írak í dag.
Frá vettvangi í Írak í dag. mynd/AP
Röð sprengjuárása í Írak kostaði 45 manns lífið í dag. Að minnsta kosti 13 létust þegar tvær bílasprengjur sprungu í borginni Kerbala.

Önnur bílasprengja sprakk síðan nálægt höfuðstöðvum lögreglunnar í borginni Kirkuk. Fleiri árásir voru gerðar í smærri þorpum landsins.

Svo virðist sem að hryðjuverkamennirnir hafi sprengt sprengjurnar á sama tíma - enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.

Arababandalagið fundar í Bagdad í næstu viku og er talið að sprengjuárásarnir hafi verið ætlað spilla fyrir fundinum. Á fundinum verður fjallað um ástandið í Írak nú þegar bandarískir hermenn hafa yfirgefið landið.

Í dag eru níu ár liðin síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak.

Talsmaður sendinefndar Sameinuðu Þjóðanna í Írak lýsti árásunum sem grimmilegum og kallaði eftir tafarlausri rannsókn á málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×