Erlent

Lögreglan ræðst inn í íbúð fjöldamorðingjans í Toulouse

Þær fréttir berast nú að franska lögreglan hafi látið til skarar skríða gegn Mohammed Merah fjöldamorðingjanum sem hefur verið umkringdur í borginni Toulouse í 30 klukkustundir. Lögeglan vill þó ekki staðfesta þetta.

Fréttamenn sem fylgjast með á vettvangi segja að fyrir nokkrum mínútum hafi þrjár sprengingar heyrst í íbúð Merah og er talið að lögreglan hafi kastað þar inn sprengjum sem lama þá sem fyrir þeim verða.

Lögreglan hefur staðfest við AFP fréttastöðina að sérsveitarmenn séu komnir inn í íbúðina. Merah er króaður af inn á baðherbergi íbúðarinnar í augnablikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×